Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.

Á hverjum degi fáum við í Kokku ótal spurningar um það hvaða áhöld eigi að nota til tiltekinna verka, til hvers önnur áhöld séu, hvernig sé best að steikja þetta og framreiða hitt.  Við leggjum okkur fram um að svara öllum eftir bestu getu og miðla þannig reynslu okkar.  Við erum einnig opin fyrir því að læra af reynslu annarra og tínum upp góðar hugmyndir og skemmtilegar sögur sem okkur eru sagðar í búðinni.

Á þessari síðu er ætlunin að miðla ýmsum fróðleik, veita ráðleggingar um val á eldhúsgræjum og meðferð þeirra  og jafnvel gæti einstaka uppskrift laumast með...

Nýjustu fróðleiksmolarnir:

15. janúar 2008 | 22:56
| Ingi

Súraldins kjúklingur

kjúklingurinn:    
4 kjúklingalæri  
2 súraldin (lime)
1 msk Boyajian chilli olía

salt og pipar eftir smekk 

salsa:   
4 ferskir tómatar
1 /3 gúrka
1/2 rauð paprika
1 súraldin 
slatti af koriander

salt og pipar eftir smekk

hrísgrjón:     
1 bollar basmati hrísgrjón
1/2 bolli maís
slatti af koriander

salt eftir smekk

lárperumauk:
2 lárperur (avókadó)
1-2 rauð chilli eftir smekk
1 súraldin
slatti af kóriander

salt og pipar eftir smekk

Forhitið ofninn í 180°C.

Byrjið á að snyrta kjúklingalærin og setjið í gler-, postulíns eða góða stálskál (vegna þess að þessi marinering er mjög súr geta óvandaðar stálskálar gefið járnbragð í matinn).  Þvoið súraldinin vel og rífið börkin af þeim yfir kjúklinginn, passið vel að fara ekki niðrí hvíta lagið í berkinum en það gefur beyskt bragð.  Kreystið þvi næst safan úr einu og hálfu súraldin yfir en geymið síðasta helminginn.  Setjið eina matskeið af Boyajian chilli olíu út í (eða 1 mjög fínt saxað chilli).  Blandið öllu vel saman og raðið ofan á viðloðunarfría grind í ofnskúffu.  Hellið restinni af marineringunni jafnt yfir alla bitana.  Saltið og piprið eftir smekk.  Setjið inn í 180°C heitan ofn og eldið í 30-45 mínútur eftir stærð.

 

Takið hýðið af tómötum með því að skera kross í toppinn á þeim og skella þeim í sjóðandi vatn í 10-15 sekúndur.  Takið þá upp úr og setjið í ísvatn eða ískalt vatn til að stoppa suðuna.  Þá er auðvelt að fletta hýðinu af.  Notið tómatahákarl eða skeið til að taka allt gumsið innan úr þeim þannig að eingöngu sé eftir stinnt tómatkjöt.  Saxið fínt og setjið í skál.  Skrælið einn þriðja af gúrku, skerið eftir endilöngu og skafið fræin innan úr.  Saxið fínt og bætið í skálina.  Saxið hálfa rauða papriku fínt og bætið í skálina.  Rífið börk af hálfu súraldin út í.  Saxið slatta af korianer og bætið út í.  Að lokum er safinn úr einu súraldin kreystur yfir og öllu blandað saman.

Helsta trikkið við að búa til gott lárperumauk er að velja rétt þroskaðar lárperur.  Það getur reynst sérstaklega erfitt þegar mismunandi afbrigði af lárperum eru mis mjúkar þegar þær eru þroskaðar.  Skerið langsum inn að steini allan hringinn og snúið.  Höggvið með hnífnum í steininn og snúið hann lausan.  Skafið því næst innan úr hýðinu með lárperuskera eða skeið.  Setjið í skál ásamt 1-2 smátt söxuðu rauðu chilli og slatta af söxuð koriander.  Maukið með kartöflupressu þangað til réttri áferð er náð (þetta er líka hægt að gera í mortéli en mér finnst betra að nota katöflupressuna til að fá jafnari áferð).

 

Setjið tvöfallt meira af vatni en hrísgrjónum í pott og saltið eftir smekk.  Sjóðið í lokuðum potti þangað til vatnið er horfið og hrísgrjónin soðin (ca. 10-12 mínútur).  Bætið 1/2 bolla af frosnum maís sem búið er að sjóða (eða maís úr dós) og slatta af söxuðu kóriander. 


 

Þegar kjúklingalærin eru tekin út úr ofninum er safinn úr hálfu súraldin (þessu sem við geymdum) kreystur yfir.  Þetta er gert til að fá ferskt súraldin bragð af kjúklingnum.

Þessi skammtur dugar fyrir 2.
Heildareldunartími er um 45 mínútur, nokkuð virk vinna allan tímann.


Græjuhornið

Verð:
3.890 kr.


Setja í körfu