Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.
30. nóvember 2006 | 09:42
| amma jónína


Innihald: 
112 g síróp
200 g sykur
500 g hveiti
200 g smjör
1 egg
1/2 tsk negull
1/2 tsk engifer
1/2 tsk natron

Piparkökuform af ýmsum stærðum og gerðum og gott kökukefli

glassúr: 
flórsykur
eggjahvíta
matarlitur



Setjið síróp, smjör, sykur og egg í pott og hitið að suðu.  Blandið þurrefnunum saman við og hnoðið þar til deigið verður jafnt og slétt.  Geymið deigið í ískáp fram að bakstri, þetta má t.d. gera degi áður en baka skal. 
Fletjið deigið út og stingið út kökur með piparkökuformum.  Bakið í ofni í nokkrar mínútur við 180°C. 
Kælið kökurnar á grind og skreytið svo af hjartans list með glassúr.