Í árhundruð hafa stálsmiðirnir í Solingen þróað aðferðir til að bæta form og bit hnífa. Um aldamótin 1900 var Karl Güde í fjölmennum hópi stálsmiða sem unnu við þessa þróun. Nýar stálblöndur voru prófaðar, ný verkfæri til smíðanna fundin upp og slípiaðferðir bættar. Á fyrstu áratugum síðustu aldar voru rúmlega 9000 handverksmenn sem unnu að þróun þessarar tækni sem er enn notuð í dag. Að því að gera hnífa að þeirri listasmíð sem góður hnífur er.
Karl Güde var einn þeirra fremstu í þessum flokki. Hann vissi að það er einungis ein aðferð til að smíða góðan hníf. Það er að vinna hann í höndunum. Strax á þeim tíma voru til ódýrir hnífar sem voru hvorki handsmíðaðir né handslípaðir. En þannig hnífar hafa aldrei verið hluti af þeirri hefð sem hnífasmíð í Solingen er.
Í tímans rás uxu nokkur smíðaverkstæðanna uppí að vera stórar verksmiðjur sem fjöldaframleiddu hnífa fyrir heimsmarkaðinn. Aðrir höfðu lagt upp laupana og enn aðrir unnu aðeins forvinnu fyrir risana. Franz Güde, sonur Karls stýrði sínu fyrirtæki í anda föður síns og hélt sínu striki.
Segja má að hnífagerð hafi verið komin í það far sem hún er í í dag árið 1930. Það ár kom hins vegar fram mikilvæg nýung sem Franz Güde fann upp. Hann þróaði aðferð sem slípar egg hnífsins bylgjulaga og myndar eggin þannig tennur. Við þetta helst hnífurinn lengur skarpur. Í dag eru allir brauðhnífar slípaðir með þessu lagi. Hinn upprunalegi brauðhnífur að hætti Franz Güde er hins vegar einungis framleiddur á einum stað, hjá Güde í Solingen.
Eftir stríð tók Franz D. Güde við fyrirtækinu af föður sínum. Enn hafði ýnislegt breyst hjá stálsmiðunum í Solingen. Með aukinni sjálfsstýringu gátu verksmiðjurnar framleitt í auknu magni og einungis þeir fremstu í hópi hinna hefðbundnu smærri fyrirtækja þar sem enn var lögð áhersla á handverk gátu lifað af. Franz D. Güde var hins vegar aldrei í vafa um með hvaða aðferð góðir hnífar væru smíðaðir, í höndunum.
Güde hnífarnir voru þróaðir með atvinnumenn í huga. Strax á 6. áratugnum voru slátrarar og kokkar mikilvægustu viðskiptavinir Güde. Gæði Güde hnífanna voru og eru rómuð meðal þeirra sem þurfa starfs síns vegna á góðum hníf að halda.
Í lok 8. áratugarins tók sonarsonarsonur Karl Güde, Dr. Karl Peter Born, við fyrirtækinu. Hann hefur haldið í heiðri hefðum og gildum Güde á tímum þegar æ fleiri kunna að meta góða smíð. Í dag eru það ekki einungis atvinnumenn sem kaupa Güde hnífa heldur einnig í vaxandi mæli fólk sem kann að meta vandaða vöru.
Einkunnarorð Karl Güde voru þegar í upphafi “hnífarnir mínir eru fyrir fólk sem eldar góðan mat af nautn”.