Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.
05. maí 2011 | 13:57
| Guðrún

Þessar sítrusmúffur slógu í gegn á 10 ára afmælishátíðinni okkar. 
Galdurinn við yndislegt sítrusbragðið eru kaldpressuðu sítrusolíurnar frá Boyajian, við bökuðum þær ýmist með sítrónu-, appelsínu- eða limeolíunni og erum enn ekki búin að gera upp við okkur hver þótti heppnast best svo að við hvetjum ykkur til að prófa bara allar 3 olíurnar.

20. janúar 2009 | 23:06
| Ingi

Þegar við fengum nýja sendingu af Lekué fyrir jól vöktu þessi sílikonumslög sérstaka athygli mína.  Augljósasta uppskriftin til að prófa að elda í þessum umslögum var einhvern vegin lax á grænmetisbeði.  Við höfum verið að prófa okkur dálítið áfram með slíkar uppskriftir og höfum ákveðið að leyfa ykkur að njóta þessarar með okkur.  Að sjálfsögðu er hægt að notast við umslag úr álpappír ef sílikonumslagið er ekki til á heimilinu, hafið hann bara tvöfaldan.

10. nóvember 2008 | 00:03
| Auður

Þessi uppskrift er upprunalega frá Ítalíu þar sem menn kalla þetta súkkulaðisalamí, en mér þótti þetta afar skemmtilegt tilbrigði við íslenska blóðmörinn og gaman að koma fólki á óvart með því að bjóða upp á slátur í eftirmat.  Ég er enn að íhuga hvaða bragðefni sé íslenskast, hef ekki enn lagt í að setja íslenskt brennivín út í blönduna, en krakkarnir mínir eru hrifnastir af "slátrinu" óbragðbættu þannig að súkkulaðið njóti sín eitt...

28. apríl 2008 | 21:46
| Ingi

Nú er kominn tími til að dusta rykið af grillinu og galdra fram heilsusamlega rétti úr okkar frábæra lambakjöti.  Það er einfelt og fljótlegt að grilla lambalandur, eina sem þarf er grill sem gefur góðan hita þannig að kjötið brúnist fallega án þess að ofelda lundirnar.

15. janúar 2008 | 22:56
| Ingi

Mexíkóskur matur þarf ekki endilega að vera sterkur eða borinn fram í tortillu.  Þessi mildi lime kjúklingur er borinn fram með fersku guacamoli, mildu salsa og hrísgrjónum.

15. nóvember 2007 | 22:56
| Ólafur

Kássur eru góðar! Þær eru góðar fyrir mann, bæði félagslega því það tekur langan tíma að elda góða kássu þannig að það er nógur tími til að spjalla og sötra rauðvín meðan kássan er í pottinum, og eins vegna þess að kássur eru hollar, næringarríkar og seðjandi auk þess sem þessi ákveðna kássa hitar manni vel og rækilega á köldum vetrardögum eins og núna eða að kvöldi eftir holla útivist.
 
Kássan sem fylgir hér á eftir er búin að vera mörg ár í þróun. Ég hef eldað þetta fyrir fjölskyldu og vini við ýmis tækifæri og í ýmsum útgáfum; til dæmis fyrir mótorhjólahópinn okkar set ég sérlega mikið chilli, til að hlýja fólki almennilega þegar við komum inn eftir dag á sandinum. En þó svo að kássan hafi verið mörg ár í þróun þá er þetta í fyrsta skipti sem uppskriftin fer á blað með skipulegum hætti.