Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.

Á hverjum degi fáum við í Kokku ótal spurningar um það hvaða áhöld eigi að nota til tiltekinna verka, til hvers önnur áhöld séu, hvernig sé best að steikja þetta og framreiða hitt.  Við leggjum okkur fram um að svara öllum eftir bestu getu og miðla þannig reynslu okkar.  Við erum einnig opin fyrir því að læra af reynslu annarra og tínum upp góðar hugmyndir og skemmtilegar sögur sem okkur eru sagðar í búðinni.

Á þessari síðu er ætlunin að miðla ýmsum fróðleik, veita ráðleggingar um val á eldhúsgræjum og meðferð þeirra  og jafnvel gæti einstaka uppskrift laumast með...

Nýjustu fróðleiksmolarnir:

14. mars 2007 | 23:20
| Ingi

Þessi réttur varð til þegar mjög fallegt nauta ribey og ferskir shitaki sveppir hoppuðu á mig í Melabúðinni um daginn.  Teriaki sósan frá Kikkoman er alveg rosalega góð og einföld sem marinering fyrir nautakjöt.  Teriaki marinerað nautakjöt finnst mér ekki passa með hefðbundnu grill-meðlæti þannig að hér er meðlætið grænmetis stir-fry og hrísgrjón.

18. febrúar 2007 | 21:57
| Auður og Ingi

Flestir Íslendingar taka bolludaginn hátíðlega og belgja sig út af gómsætum bollum með ýmsu gúmmulaði rétt fyrir lönguföstu . Mér þykja vatnsdeigsbollur taka flestu öðru fram og reyndar finnst mér engin ástæða til að takmarka neyslu á vatnsdeigsbakkelsi við bolludaginn enda er það skemmtileg skel fyrir ýmsar fyllingar, bæði sætar og saltar.  Hér á eftir kemur uppskrift að hefðbundnum rjómabollum með guðdómlegu súkkulaðikremi en einnig tillaga að súkkulaðimúsarfyllingu sem er einföld en skemmtileg tilbreyting. 

01. febrúar 2007 | 23:10
| Auður og Ingi

Við höfum af og til útbúið þessa súpu með tilbúnu Tom-yum mauki en lengi langað að útbúa hana frá grunni úr fersku hráefni að hætti tælendinga.  Fiskurinn er ekki soðinn með súpunni heldur eingöngu settur hrár í botn skálar hvers og eins og sjóðandi heitri súpunni helt yfir.  Fiskurinn er þá mátulega eldaður þegar súpan hefur kólnað passlega mikið til að hægt sé að byrja að borða hana.

30. nóvember 2006 | 09:42
| amma jónína

Myndakökubakstur er frábær dægradvöl á aðventunni.  Þessar þurfa svolítinn undirbúning, en það er best að útbúa deigið kvöldið áður en bakstur er fyrirhugaður og geyma í ískáp fram að bakstri.  Við mælum sérstaklega með því að myndakökubakstur sé stundaður í góðra vina hópi.

05. júlí 2006 | 17:03
| De Buyer

Magdalenur (eða Madeleine) eru litlar skeljalaga smákökur sem gott er að bera fram sem smáhressingu með kaffisopa eða jafnvel líkjörsdropa.  Kökurnar eru franskar að uppruna og taldar bera nafn ungrar sveitastúlku frá Commercy í Lorraine héraði, en hún bakaði kökurnar fyrir gestkomandi hertoga sem féll fyrir þeim.  Svo vildi til að dóttir hertoga þess, María að nafni, var gift Lúðvíki fimmtánda og kynnti hún kökurnar við hirðina á Versölum og hafa þær notið vinsælda í Frakklandi og víðar æ síðan, ávallt auðþekkjanlegar á skeljalöguninni.

04. júní 2006 | 21:58
| Ingi

Andabringa með stökkri puru og góðri appelsínusósu er himneskur matur.  Til að ná purunni sérstaklega stökkri finnst mér best að elda bringurnar í ofni undir sjóðandi heitu grilli.  Í appelsínusósuna nota ég nýkreystan appelsínusafa til að ná fram fersku appelsínubragði.  Hér er borið fram með bringunum skemmtilegt kartöflugratín með sveppum, sem eldað er í sílikon formi sem gerir mögulegt að ná því heilu úr forminu og skera niður eins og köku, ásamt steiktu spínati með sveppum.  Einfaldur matur þar sem bragið af öndinni fær að njóta sín.

17. maí 2006 | 00:00
| Guðrún

Eftir að við fengum fyrstu sendinguna af kólombíska súkkulaðinu okkar var það ljóst að það þyrfti að prófa að búa til brúnkur úr því.  Fyrir valinu varð 65% súkkulaði til að nota í baksturinn, sem gerir brúnkurnar passlega bragðmiklar og saðsamar. 

04. febrúar 2006 | 00:00
| Auður

Það er eitthvað einstaklega notalegt við það að hafa svona kássu mallandi á eldavélinni á köldum vetrarkvöldum.  Kássan verður í raun betri eftir því sem hún mallar lengur og alls ekki síðri upphituð.

26. desember 2005 | 21:00
| Ingi

Okkur hjónum áskotnuðust rétt fyrir jól nokkrar myndarlegar gæsabringur.  Það lá því beint við að elda tvær þeirra handa okkur á annan í jólum.  Bringurnar voru snöggsteiktar og bornar fram með berjasósu, litlum kartöflgratínum án rjóma og snöggsoðnum strengjabaunum.



Græjuhornið

Verð:
3.890 kr.


Setja í körfu