Á hverjum degi fáum við í Kokku ótal spurningar um það hvaða áhöld eigi að nota til tiltekinna verka, til hvers önnur áhöld séu, hvernig sé best að steikja þetta og framreiða hitt. Við leggjum okkur fram um að svara öllum eftir bestu getu og miðla þannig reynslu okkar. Við erum einnig opin fyrir því að læra af reynslu annarra og tínum upp góðar hugmyndir og skemmtilegar sögur sem okkur eru sagðar í búðinni.
Á þessari síðu er ætlunin að miðla ýmsum fróðleik, veita ráðleggingar um val á eldhúsgræjum og meðferð þeirra og jafnvel gæti einstaka uppskrift laumast með...
Þessar sítrusmúffur slógu í gegn á 10 ára afmælishátíðinni okkar.
Galdurinn við yndislegt sítrusbragðið eru kaldpressuðu sítrusolíurnar frá Boyajian, við bökuðum þær ýmist með sítrónu-, appelsínu- eða limeolíunni og erum enn ekki búin að gera upp við okkur hver þótti heppnast best svo að við hvetjum ykkur til að prófa bara allar 3 olíurnar.
Þegar við fengum nýja sendingu af Lekué fyrir jól vöktu þessi sílikonumslög sérstaka athygli mína. Augljósasta uppskriftin til að prófa að elda í þessum umslögum var einhvern vegin lax á grænmetisbeði. Við höfum verið að prófa okkur dálítið áfram með slíkar uppskriftir og höfum ákveðið að leyfa ykkur að njóta þessarar með okkur. Að sjálfsögðu er hægt að notast við umslag úr álpappír ef sílikonumslagið er ekki til á heimilinu, hafið hann bara tvöfaldan.
Þessi uppskrift er upprunalega frá Ítalíu þar sem menn kalla þetta súkkulaðisalamí, en mér þótti þetta afar skemmtilegt tilbrigði við íslenska blóðmörinn og gaman að koma fólki á óvart með því að bjóða upp á slátur í eftirmat. Ég er enn að íhuga hvaða bragðefni sé íslenskast, hef ekki enn lagt í að setja íslenskt brennivín út í blönduna, en krakkarnir mínir eru hrifnastir af "slátrinu" óbragðbættu þannig að súkkulaðið njóti sín eitt...
Nú er kominn tími til að dusta rykið af grillinu og galdra fram heilsusamlega rétti úr okkar frábæra lambakjöti. Það er einfelt og fljótlegt að grilla lambalandur, eina sem þarf er grill sem gefur góðan hita þannig að kjötið brúnist fallega án þess að ofelda lundirnar.
Mexíkóskur matur þarf ekki endilega að vera sterkur eða borinn fram í tortillu. Þessi mildi lime kjúklingur er borinn fram með fersku guacamoli, mildu salsa og hrísgrjónum.
Kássur eru góðar! Þær eru góðar fyrir mann, bæði félagslega því það tekur langan tíma að elda góða kássu þannig að það er nógur tími til að spjalla og sötra rauðvín meðan kássan er í pottinum, og eins vegna þess að kássur eru hollar, næringarríkar og seðjandi auk þess sem þessi ákveðna kássa hitar manni vel og rækilega á köldum vetrardögum eins og núna eða að kvöldi eftir holla útivist.
Kássan sem fylgir hér á eftir er búin að vera mörg ár í þróun. Ég hef eldað þetta fyrir fjölskyldu og vini við ýmis tækifæri og í ýmsum útgáfum; til dæmis fyrir mótorhjólahópinn okkar set ég sérlega mikið chilli, til að hlýja fólki almennilega þegar við komum inn eftir dag á sandinum. En þó svo að kássan hafi verið mörg ár í þróun þá er þetta í fyrsta skipti sem uppskriftin fer á blað með skipulegum hætti.
Síðastliðið sumar létum við ásamt góðum vinum þann draum rætast að grilla eithvað stærra en lambalæri.
Eftir lesningu þeirrar ágætu bókar “The River Cottage Meat book” sem er einskonar skyldulesning kjötætunnar var ákveðið að á teininn skyldi ekkert minna en heilt svín.
Ég rakst á einstaklega fallegt hrefnukjöt í búð um daginn og varð hreinlega að kaupa það. Gott hrefnukjöt er best að borða hrátt en mér finnst skemmtilegast að marinera það í soyja sósu og grilla á mjög heitu grilli þannig að það myndist stökk skorpa en kjötbitinn sé enn alveg hrár að innan. Dæmigert er að bera kjötið fram með vorlauk og góðri soya sósu.
Það er dálítið snúnara að grilla innanlæri af lambi heldur en t.d. ribey vegna þess að ef það er grillað örlítið of lengi verður það þurrt og þar sem engin fita er á því verður að marinera það upp úr kryddlegi sem inniheldur vel af olíu. Einföld leið til að marinera lambakjöt er að nota balsamic salatsósuna frá Boyajian og bæta við smá svörtum pipar og ferskum kryddjurtum.