Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.

Á hverjum degi fáum við í Kokku ótal spurningar um það hvaða áhöld eigi að nota til tiltekinna verka, til hvers önnur áhöld séu, hvernig sé best að steikja þetta og framreiða hitt.  Við leggjum okkur fram um að svara öllum eftir bestu getu og miðla þannig reynslu okkar.  Við erum einnig opin fyrir því að læra af reynslu annarra og tínum upp góðar hugmyndir og skemmtilegar sögur sem okkur eru sagðar í búðinni.

Á þessari síðu er ætlunin að miðla ýmsum fróðleik, veita ráðleggingar um val á eldhúsgræjum og meðferð þeirra  og jafnvel gæti einstaka uppskrift laumast með...

Nýjustu fróðleiksmolarnir:

05. maí 2011 | 13:57
| Guðrún

Sítrusmúffur
sitrusmuffur00
Innihald:
225 gr. smjör, mjúkt
250 gr sykur
5 egg
½ tsk. sítrónuolía
225 gr. hveiti
1 tsk. salt

Hitið ofninn í 160°C. Hrærið saman sykur og smjör. Setjið 3 egg saman við og hrærið vel. Síðan bætið þið sítrónuolíunni út í og 2 eggjum til viðbótar og hrærið þar til allt er vel blandað saman. Vigtið hveitið og blandið saltinu vel saman við. Setjið hveitiblönduna út í degið í tveimur skömmtum og hrærið vel á milli. Ég set degið gjarnan í einnota sprautupoka. Það er auðveldara að hella deginu í pokann ef þið skerið ofan af tveggja lítra gosflösku og setjið pokann ofaní hana til stuðnings.
Svo brettið þið upp á pokann svo efsti hlutinn haldist hreinn. Lokið fyrir pokann með pokaklemmu (gott er að geyma deigið í 10 mín. í ísskáp svo það stífni svolítið). Svo er klippt framan af oddinum, ca. 1,5 cm. og sprautað í formin. Bakið í mínímúffuformi í ca. 15 mín. eða venjulegu múffuformi ca. 20 mín., eða þar til kökuprjónn kemur hreinn út.
Skreytið með flórsykri og rifnum berki. Svo má auðvitað búa til glassúr úr flórsykri, sítrónusafa og sítrónuolíu og dýfa toppnum af múffunum ofan í.
Það má líka nota appelsínu- eða limeolíu í þessa uppskrift.


Græjuhornið

Verð:
19.800 kr.


Setja í körfu