Kássur eru góðar! Þær eru góðar fyrir mann, bæði félagslega því það tekur langan tíma að elda góða kássu þannig að það er nógur tími til að spjalla og sötra rauðvín meðan kássan er í pottinum, og eins vegna þess að kássur eru hollar, næringarríkar og seðjandi auk þess sem þessi ákveðna kássa hitar manni vel og rækilega á köldum vetrardögum eins og núna eða að kvöldi eftir holla útivist.
Kássan sem fylgir hér á eftir er búin að vera mörg ár í þróun. Ég hef eldað þetta fyrir fjölskyldu og vini við ýmis tækifæri og í ýmsum útgáfum; til dæmis fyrir mótorhjólahópinn okkar set ég sérlega mikið chilli, til að hlýja fólki almennilega þegar við komum inn eftir dag á sandinum. En þó svo að kássan hafi verið mörg ár í þróun þá er þetta í fyrsta skipti sem uppskriftin fer á blað með skipulegum hætti.