Óskalistar á vefnum
Við í Kokku gerum okkur fulla grein fyrir því hve tímafrekt það getur verið að undirbúa brúðkaup, enda í mörg horn að líta. Þess vegna ákváðum við að bjóða væntanlegum brúðhjónum upp á þá þjónustu að útbúa sjálf gjafalista hér á vefnum okkar. Með þessu erum við alls ekki að reyna að losna við hjónaleysi úr búðinni okkar - við tökum að sjálfsögðu vel á móti ykkur og erum til skrafs og ráðagerða - heldur trúum við því að margir muni fagna þessu tækifæri til að klára málið í ró og næði heima við.
Það er einfalt að útbúa gjafalista hér á vefnum. Þið einfaldlega setjið þær vörur sem ykkur langar í ofan í körfuna líkt og þið ætluðuð að kaupa þær sjálf. Þegar þið eruð orðin sátt við innihald körfunnar veljið þið að útbúa gjafalista (en ekki ganga frá pöntun) og fyllið svo út viðeigandi upplýsingar, nöfn og brúðkaupsdag. Einfalt og þægilegt fyrir önnum kafin hjónaefni.
Ef þið veljið að láta birta óskalistann ykkar hér á vefnum setjum við upp sérstaka síðu fyrir ykkur og sendum ykkur slóðina að henni. (Hér er sýnishorn af því hvernig svona síða getur litið út.) Þetta er sérstaklega þægilegt fyrir þá gesti sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Þeir geta pantað gjafir beint af listanum, við pökkum þeim inn og viðkomandi sækir síðan pakkann til okkar, fær hann sendan til sín eða beint til brúðhjónanna. Gjafalistinn er að sjálfsögðu einnig aðgengilegur í versluninni okkar á Laugaveginum.
|
Óskalistar á vef:
19.05.2012 Marianne og Geir
19.05.2012 Ingibjörg og Hörður
02.06.2012 Steinunn og Þórður
09.06.2012 Jenný og Hrafn
16.06.2012 Guðrún Birna og Sverrir
07.07.2012 Sirrý Sif og Vilhjálmur
Listar væntanlegir á vefinn:
Óskalistar aðeins aðgengilegir á Laugaveginum:
09.06.2012 Hildur Margrét og Guðni
Ertu að leita að lista en finnur hann ekki hér?
Sum tilvonandi brúðhjón kjósa að birta ekki óskalistann sinn á vefnum.
Prófaðu að hringja í okkur í síma 562-0808 eða koma við hjá okkur á Laugaveginum og spyrjast fyrir.
|