Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.
Á Kokkuvefnum er að finna úrval af þeim vörum sem til sölu eru í versluninni Kokku.  Vefurinn er fyrst of fremst hugsaður til hægðarauka fyrir viðskiptavini okkar nær og fjær.  Það er jú oft notalegt að geta skoðað vöruúrvalið í ró og næði heima við á þeim tíma sem manni sjálfum hentar.

Hægt er að skoða vörur bæði eftir hlutverki og vörumerki.  T.d. er hægt að finna deBuyer pönnur bæði með því að fara undir Vörumerki / deBuyer / pönnur eða undir Vörur / Pönnur.  Einnig er hægt að nota leitina og slá t.d. inn orðið pönnur í litla gluggann efst hægra megin, þá birtast allar þær síður á vefnum sem fjalla um pönnur. 

En vefurinn er ekki bara rafrænn bæklingur heldur er hugmyndin sú að þú getir gengið frá pöntun í fullkominni og öruggri vefverslun og fáir vörurnar sendar heim að dyrum.
Hér eru leiðbeiningar um það hvernig þú pantar og hér eru skilmálar vefverslunarinnar.

Enn er aðeins brot af þeim vörum sem við seljum komið á vefinn en fleiri vörur munu bætast við jafnt og þétt á næstu mánuðum.  Ef þú saknar einhvers sérstaklega af vefnum hvetjum við þig til að láta okkur vita og við munum gera okkar besta til að bregðast við því. 
Svo viljum við að sjálfsögðu áfram sjá þig í Kokku.