Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.
Þeir sem vanir eru verslun á Internetinu ættu ekki að lenda í nokkrum vandræðum með að panta vörur á kokkuvefnum.  Hinir sem ef til vill hafa minni reynslu ættu þó ekki að hafa neinar áhyggjur því að það er sáraeinfalt af versla á netinu.  Í reynd virkar þetta ósköp svipað og stórmarkaður þar sem þú röltir um með búðarkerru, setur í hana vörur og ferð svo á kassann þar sem þú greiðir fyrir vörurnar.

Svona ferðu að:

1. skref: velja vörur
Við allar vörur finnurðu mynd af búðarkörfu:  
Ef þú ýtir á körfuna kemur upp lítill gluggi sem segir þér að búið sé að setja 1 stk. af viðkomandi vöru í körfuna þína. 
Þú getur breytt magninu sem þú pantar með því að færa músarbendilinn í litla kassann fyrir framan körfuna þar sem þú slærð inn það magn sem þú ætlar að panta.

Efst hægra megin á síðunni sérðu alltaf heildarstöðuna á innkaupakörfunni þinni, þ.e. fjölda þeirra vara sem þú hefur sett í körfuna og heildarupphæð innkaupanna. 
Ekki hafa neina áhyggjur þótt þú hafir ef til vill bætt einhverju í körfuna sem þú ætlar ekki lengur að kaupa, þú getur alltaf tekið hluti aftur úr körfunni áður en þú gengur frá pöntun.

2. skref: skoða körfu og samþykkja
Þegar þú ert tilbúin/n til að týna til það
sem þú hefur áhuga á að kaupa eða ef þú vilt skoða það sem þú ert búin/n að setja í innkaupakörfuna þína geturðu smellt á körfuna efst í hægra horninu. 
Þá færðu upp yfirlit yfir körfuna, þú getur breytt pöntuðu magni með því að fara í magnreitinn í viðeigandi línu, fjarlægt einstakar vörur með því að ýta á eyða takkann aftan við viðkomandi vöru eða tæmt körfuna með því að ýta á tæma körfu takkann.  Hafirðu breytt magni á einstökum vörum geturðu þurft að ýta á endurreikna hnappinn til að samtala körfunnar sé rétt. 

3. skref: ganga frá pöntun og greiða
Þegar þú ert orðin/n sátt/ur við pöntunina ýtirðu á ganga frá pöntun hnappinn.  Þá kemur upp ný síða þar sem þú þarft að fylla inn upplýsingar um það hvert á að senda pöntunina, hvernig þú ætlar að greiða o.s.frv.  Þegar allar upplýsingar hafa verið settar inn ýtirðu á ganga frá pöntun hnappinn og sendir pöntunina.  Þú ættir að fá staðfestingu á pöntuninni í  tölvupósti innan skamms.

4. skref: móttaka
Alla jafna ættu vörurnar að berast þér heim eftir 2-3 virka daga.  Ef þú ert ekki heima þegar pakkinn berst skilur pósturinn eftir miða og þú getur sótt böggulinn á næsta pósthús.  Í þeim tilfellum sem vara er uppseld eða þegar pantaðar eru sérpöntunarvörur höfum við samband eftir móttöku pöntunar og látum þig vita hvenær varan er væntanleg.

Aðstoð og upplýsingar
Ef þú lendir í einhverjum vandræðum með innkaupin er þér velkomið að hafa samband við okkur í síma: 562 0808 á opnunartíma kokku eða með því að senda okkur tölvupóst á kokka@kokka.is