Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.

Kokka hefur mikinn áhuga á að koma á framfæri íslenskri hönnun og framleiðslu, hvort sem um er að ræða iðnhönnun eða listmuni. Því miður er framboðið á íslenskri iðnaðarframleiðslu ekki mikið enn sem komið er enda oft erfitt að keppa við erlenda fjöldaframleiðslu í verði.  Það sem framleitt er hér á landi er hins vegar oftast fyllilega samkeppnishæft í gæðum og íslensk hönnun stendur erlendri hönnun síst að baki.