Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.
Verð:
1.500 kr.


Setja í körfu
Verð:
1.500 kr.


Setja í körfu
Verð:
1.500 kr.


Setja í körfu

Verð:
1.500 kr.


Setja í körfu

Verð:
3.400 kr.


Setja í körfu


Íslensk menning og náttúra, bernskuminningar, sveitasæla og vísur eins og Fljúga hvítu fiðrildin eru innblásturinn að öllum vörum Bility. Kertastjakar, kertahringir og veggskraut er nákvæmlega skorið út úr silfurlituðu ryðfríu stáli og varpa þannig ævintýralegri birtu og skugga á umhverfi sitt.

Bility vörurnar eru fisléttar, í flötum pakkningum úr endurunnum pappír og passa í næstum því hvaða vasa eða tösku sem er. Öll vörulínan er hönnuð með það í huga að lágmarka efnisnotkun og flutningskostnað.

Bility vörumerkið varð til á hönnunarstofunni Studiobility, sem stofnuð var árið 2005 af Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur og Jóni Ásgeiri Hreinssyni. Studiobility hefur hlotið alþjóðlega athygli fyrir hönnun einstakra húsgagna á borð við Rocking Beauty, Flowerchair og Lavaflower. Fjallað hefur verið um hönnun fyrirtækisins í helstu netmiðlum hönnunarheimsins s.s. Cool Hunting, Core 77 og Dezeen, og blöðum og tímaritum á borð við Art Review, Dwell, Casa, Elle Decoration og New York Times.