|
Gíraffinn er skemmtilegur stóll hannaður af hálf-íslenska hönnuðinum Chuck Mack sem búsettur er á Íslandi.
Chuck smíðar sjálfur frumgerðir í tré sem hann svo útfærir til iðnaðarframleiðslu í samvinnu við færustu tæknimenn. Hann sækist eftir því að búa til hluti sem eru jafn praktískir og þeir eru fagrir og Gírafinn stendur sannanlega undir því.
Gíraffinn er stóll, trappa, fótaskemill og leikfangadýr allt í einu. Langur hálsinn nýtist sem handfang þegar stólinn er færður á milli staða og setan er í þægilegri hæð til að nýtast sem trappa þegar maður þarf að teygja sig upp í efri skápa eða til að tylla fæti og reima skó.
Gírafinn er framleiddur úr stáli og lökkuðum viði og hann fæst í mörgum litum og viðartegundum.
Gíraffann er hægt að fá samsettan eða ósamsettan í flötum pakka sem auðvelt er að senda hvert á land sem er.
|