Við Íslendingar höfum haldið svalri ímynd Íslands mjög á lofti undanfarið fullviss um að fátt fyrirfinnist í veröldinni svalara en við.
Nú hefur Óðinn Bolli Björgvinsson, ungur íslenskur hönnuður með húmor fyrir íslensku mikilmennskubrjálæði, tekið sig til og hannað og látið framleiða Klakann, svölustu útgáfuna af Íslandi sem enn hefur sést.
Óðinn er að sjálfsögðu að leika sér með afar útbreytt gæluyrði yfir eyjuna okkar fögru en ef til vill harðbýlu og hið auðþekkta form sem útlínur eyjunnar mynda. Hugmyndin er snilldarlega einföld og breytir hverjum drykk í töfrablöndu.
Klakinn er sílikonform fyrir 4 Klaka.
Fleiri dæmi um skemmtilega innsýn Óðins í íslenska þjóðarsál má sjá á www.odinn.com
|
|