Leirpotturinn frumsýndur í Kokku á HönnunarMars 2009
Fyrir um það bil 1000 árum ráfuðu landnámskindur um Dalina. Bein þeirra hefur jörðin varðveitt öll þessi ár í Fagradalsleirnum. Nú rúmum 1000 árum seinna kynna hönnunarfyrirtækið Borðið og leirverksmiðjan Leir 7 samstarf sitt við jörðina. Samvinnan byggir á eiginleikum ólíkra náttúruafla, þar sem jörðin og maðurinn sameina krafta sína.
...þannig varð til Leirpottur sem sameinar staðbundin sérkenni, gamal gróið notagildi og hugsjón um betri nýtingu auðlinda landsins. Eldun í leirpottum er ævaforn eldurnaraðferð, ákveðin öndun á sér stað í gegnum leirinn en ekki uppgufun svo næringarefnin haldast betur í fæðunni. Þetta er hæg en einföld matargerð.
Leirpotturinn verður frumsýndur í versluninni Kokku sem mun verða söluaðili pottsins. Leirpotturinn er samstarfsverkefni hönnunarfyrirtækisins Borðsins og Leirverksmiðjunnar Leir 7 á Stykkishólmi, sérlegur ráðgjafi er matreiðslumeistarinn Friðrik Valur Karlsson sem rekur veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri.
Viðburðurinn er partur af Hönnunarmars sem stendur frá 26.-29. mars.
Leirverksmiðjan Leir 7: Sigríður Erla Guðmundsdóttir
Hönnunarfyrirtækið Borðið: Brynhildur Pálsdóttir & Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir
|