Eftir langa bið höfum við loksins fengið aftur sendingu af frábæru og sterku glervörunum frá Jenaer.
Sögu Jenaer-glerframleiðslunnar má rekja aftur til ársins 1884 en þá framleiddi Jenaer glervörur fyrir tilraunastofur. Fyrirtækið átti heiðurinn að fyrstu eldföstu glermótunum sem framleidd voru. Með tilkomu Bauhaus stefnunnar, upp úr 1930, tóku ýmsir hönnuðir að vinna með fyrirtækinu og er án efa þekktastur þeirra Wilhelm Wagenfeld. Hann hannaði margrómaðan teketil sem enn er framleiddur hjá Jenaer verksmiðjunni.
Allar vörur Jenaer eru úr sérstaklega hertu gleri sem þolir 420°C og einnig mjög vel tíðan þvott í uppþvottavélum. Glerið er mjög þunnt og hlutirnir því sérstaklega léttir og þægilegir í notkun.
Á heimasíðu Jenaer má finna ýmsan fróðleik.
|
|