Postulínsverksmiðjan Kahla var stöfnuð 1844 og varð fljótt einn af stærstu frameiðendum postulíns í Þýskalandi. Eftir lok seinni heimstyrjaldarinnar lenti verksmiðjan austan megin við múrinn og var þjóðnýtt allt þar til járntjaldið féll.
Þegar nýir rekstaraðilar tóku við 1994 eftir fall járntjaldsins var framleiðslan öll uppfærð til nýjustu tækni. Nýir aðilar lögðu ríka áherslu á að fá góða hönnuði til að vinna fyrir fyrirtækið. Sú stefna hefur líka skilað sér fyrir Kahla, en fyrirtækið hefur fengið yfir 40 hönnunarverðlaun síðasta áratuginn.
Allt Kahla postulín er eldfast, má þvo í uppþvottavél og nota í örbylgjuofna. Kokka flytur inn og selur valda hluti úr stórri framleiðslulínu Kahla.
Gaman getur verið fyrir áhugasama að skoða heimasíðu Kahla.
|
|