Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.


Microplane rifjárnin voru upprunalega þróuð, árið 1990, til að raspa og móta við.  Nokkrum árum síðar var Lorraine Lee, húsmóðir frá Ottawa í Kanada, að vandræðast með að rífa börk í appelsínuköku með gamla rifjárninu sínu.  Hún greip nýjan rasp sem eiginmaður hennar hafði komið með heim úr byggingavöruverslun þeirra og sér til mikillar undrunar virkaði hann mun betur en nokkuð rifjárn sem hún hafði átt.  Lee hjónin dáðust að verkfærinu, átu kökuna og breyttu síðan vörulýsingunni á því í vörulista byggingavöruverslunarinnar.

Þar með var hafin óvænt innkoma Grace verkfæraframleiðandans inn í heim eldhúsáhaldanna.  Einstök tækni við framleiðslu rifjárnanna gefur þeim flugbeittar brúnir sem skera matinn í stað þess að tæta hann.

Kokka flytur inn og selur flestar af vörulínum Microplane.

Á heimasíðu Microplane eru nánari upplýsingar.