Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.


Mizuno er án efa virtasti framleiðandi á Japönskum hnífum og sverðum.  Mizuno framleiðir sverð fyrir japönsku keisarafjölskylduna og hefur oft verið heimsótt af þeim, en það þykir mikill heiður þar í landi.

Mizuno er eini framleiðandinn sem hefur opinbert leyfi frá keisarafjölskyldunni til að framleiða Fuguhiki sem er hnífur sem notaður er til að verka blöðrufisk, en hann er baneitraður ef ekki er notaður nógu beittur hnífur.  Áhugasamir geta fengið að sjá einn slíkan í Kokku.

Allir Mizuno hnífarnir eru úr Karbon-stáli sem er ekki ryðfrítt en hefur mun meiri hörku en ryðfrítt stál sem þýðir beittari hnífa og betri endingu á biti.

Kokka flytur inn og selur hnífa af ýmsum gerðum og stærðum frá Mizuno.