Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.
 

Fyrir nær 60 árum framleiddi Rowlett sína fyrstu brauðrist.  Í dag framleiðir fyrirtækið hágæða tæki fyrir eldhús, ekki síst atvinnueldhús. 

Orðspor Rowlett byggir á hágæða handverki, endingu og góðri hönnun.  Hvert tæki er sett saman í höndum og prófað vandlega til að tryggja ánægju viðskiptavinarins.  Í leit sinni að fullkomnun eru vörur Rowlett í stöðugri þróun og nýjasta tækni nýtt í framleiðsluna.

Kokka flytur inn og selur brauðristar úr tveimur línum frá Rowlett, Esprit sem eru nútímalegar heimilisbrauðristar og Premier sem eru upprunalegu brauðristarnar frá Rowlett.

Ýmsar upplýsingar má finna á heimasíðu Rowlett.