Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.


Daninn Holger Nielsen stofnaði Vipp árið 1939 eftir að ruslafata sem hann útbjó fyrir hárgreiðslustofu eiginkonu sinnar varð svo vinsæl að hann gat ekki annað en farið út í framleiðslu á henni.  Fyrirtækið er í dag rekið af dóttur Holgers og selur meira en 70% af framleiðslu sinnar út fyrir landsteinana.

Ruslaföturnar hafa síðan þá tekið smávægilegum breytingum í takt við strauma og stefnur auk nýjunga í framleiðslutækni.

Kokka flytur inn og selur allar tegundir ruslafata frá Vipp og hefur jafnvel flutt inn einstaka klósettbursta fyrir dygga viðskiptavini.

Á heimasíðu Vipp er hægt að nálgast ýmsan fróðleik.