afgreiðslufrestur
Vörur sem merktar eru sem lagervara eru venjulega afgreiddar frá okkur næsta virka dag, þó getur komið fyrir að vörur eru tímabundið uppseldar og munum við þá strax hafa samband í síma eða með tölvupósti. Vörur sem eru uppseldar til lengri tíma eru annaðhvort fjarlægðar af vefnum eða sérmerktar.
Afgreiðslufrestur á sérpöntunarvöru er misjafn eftir framleiðendum en við munum hafa samband og gefa upp áætlaðan afgreiðslutíma eftir pöntun.
afhending
Þær vörur sem pantaðar eru á vefnum eru sendar viðtakanda með Íslandspósti. Bögglapóstur er keyrður út á tímabilinu 17-22 á virkum dögum og ætti að jafnaði að berast 2-3 virkum dögum eftir pöntun. Einnig er hægt að panta vörur og sækja þær í verslun okkar við Laugaveg 47.
sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður leggst við allar pantanir nema þær sem sóttar eru í verslunina. Sendingarkostnaður er 850 kr. ef greitt er með kreditkorti en sé vara send í póstkröfu bætist 500 kr. póstkröfugjald við sendingarkostnaðinn.
Þegar sérstaklega stórir hlutir, s.s. húsgögn og stærri raftæki sem ekki henta í venjulegan bögglapóst eru pantaðir er sérstaklega leitað tilboða í hagstæðasta flutning til viðtakanda, í þeim tilfellum getur sendingarkostnaður verið hærri en 850 kr. en við látum vita og óskum eftir samþykki kaupanda áður en pöntun er afgreidd.
greiðslur
Hægt er að greiða pantanir með kreditkorti eða staðgreiða póstkröfu. Öll vinnsla kreditkortanúmera á netinu er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda sé tryggt.
gjafir
Hægt er að panta gjafapökkun þegar gengið er frá pöntun. Með gjafapökkun fylgir kort sem hægt er að fá áletrað ef tiltekinn er texti á kort þegar gjafapökkun er valin, sé enginn texti sleginn inn er kortið sent með óútfyllt. Gjarnan má tiltaka tilefni gjafarinnar og hverjum hún sé ætluð í athugasemdum við pöntun svo að hægt sé að velja viðeigandi pappír og kort. Gjafapökkun með korti kostar 300 kr. og bætist gjaldið við heildarupphæð pöntunar þegar karfan er afgreidd.
sent öðrum en þeim sem pantar
Hægt er að senda gjafir sem keyptar eru á kokkuvefnum beint til viðtakanda, þ.e. á annað heimilisfang en hjá þeim sem pantar. Það er gert þegar gengið er frá pöntun og valinn er afhendingarmáti.
skilaréttur
Samkvæmt lögum nr. 46/200 um húsgöngu- og fjarsölusamninga getur neytandi fallið frá samningi um kaup á vöru yfir netið innan 14 daga frá pöntun með skriflegri yfirlýsingu. Ónotaðri vöru í upprunalegum umbúðum má skila gegn endurgreiðslu innan 14 daga. Þó er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur nema um galla sé að ræða.
virðisaukaskattur
Öll verð eru uppgefin í íslenskum krónum með virðisaukaskatti.
fyrirvari
Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
öryggi í pöntunum - dulkóðun
Allar viðkvæmar upplýsingar, s.s. kreditkortanúmer, sem gefnar eru upp við pöntun á kokkuvefnum eru dulkóðaðar áður en þær eru sendar til okkar, þetta tryggir að óviðkomandi aðilar geta ekki komist yfir upplýsingarnar.
sérpantanir
Sumar af þeim vörum sem við seljum í kokku eru einungis seldar eftir pöntunum og eru almennt ekki til á lager verslunarinnar. Þessar vörur eru sérstaklega merktar í vefversluninni. Afgreiðslutími sérpantana er misjafn eftir framleiðendum en við höfum samband við kaupanda eftir að pöntun er gerð og gefum upp áætlaðan afgreiðslutíma.
trúnaður og persónuupplýsingar
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Kokka mun ekki láta þriðja aðila í té persónuupplýsingar sem til verða við pantanir né vista upplýsingar um þá sem panta lengur en ástæða er til.
|
|