Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.


Töfrasprotinn var fundinn upp árið 1950 í Sviss og fékk nafnið Bamix.  Hann hefur síðan þá verið framleiddur undir ströngu gæðaeftirliti sem hefur skilað sér í mjög langri endingu.

Bamix töfrasprotinn er mjög fjölhæfur.  Hann getur hakkað, maukað, blandað, þeytt, malað og mulið eða flest það sem venjulegar matarvinnsluvélar geta.  Hann er mjög fyrirferðarlítill, einfaldur í notkun og þægilegur að þrífa.

Kokka flytur inn þrjár mismunandi tegundir af Bamix töfrasprotum, tvo fyrir heimanotkun og einn fyrir atvinnueldhús.  Einnig geta eldri Bamix eigendur keypt ýmsa fylgihluti fyrir gamla töfrasprotann sinn hjá Kokku.

Ýmsar skemmtilegar upplýsingar má finna á heimasíðu Bamix.