de Buyer er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var 1830 og er staðsett í Vosges fjöllunum í Norð-Austur Frakklandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu og markaðssetningu á áhöldum fyrir atvinnueldhús og bakarí. Framleiðslan byggir á hinni aldagömlu frönsku matarhefð og mikilli uppsafnaðir reynslu í málmsmíði.
Fyrirtækið framleiðir yfir 2500 mismunandi vörur sem margar hverjar eru mjög sérhæfðar.
Kokka hefur valið úr þær vörur sem henta heimiliseldhúsum úr hinni gríðarstóru framleiðslulínu de Buyer til að flytja inn og selja.
Á heimasíðu de Buyer má finna marga skemmtilega hluti.
|
|