Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.


Epicurean skurðarbrettin eru frábær nýjung sem á eftir að gera okkur lífið auðveldara í eldhúsinu.  Brettin eru búin til úr Richlite, sem er umhverfisvænt efni unnið úr trétrefjum og lakki.  Þau eru létt, meðfærileg, auðveld í þrifum, viðhaldsfrí og fara vel með hnífana okkar.

Brettin koma í fjölda stærða og tveimur litum, náttúrulegum brúnum lit og svörtum, með eða án safagrófar.



Epicurean flokkar brettin í þrjár framleiðslulínur.  Kitchen brettin sem eru þunn og meðfærileg, Gourmet brettin sem eru þykkari og með safagróf og Chef brettin sem eru sérlega stór og þykk og einnig með safagróf.

  Má þvo í uppþvottavél
Ólíkt viðarbrettum þá má þvo Epicurean brettin í uppþvottavél.  Við getum því verið viss um að þau séu alltaf hrein.
  Hnífavæna
Ólíkt plastbrettum þá fara Epicurean brettin ekki illa með bitið í hnífunum okkar, sem þýðir að þá þarf að stála og brýna minna.
  Notagildi
Notagildið er haft að leiðarljósi við hönnun Epicurean brettanna.  Á þeim öllum er gat sem gerir auðvelt að hengja brettið upp.
  Viðhaldsfrí
Epicurean brettin eru einstaklega endingargóð og þau þarf ekki að olíubera.  Þau verða einnig síður blettótt við notkun.
  Hitaþolin
Epicurean brettin þola hita allt að 176°C.  Þau má því nota undir heitt án þess að eiga á hættu að brunablettir koma á þau.
  Safagróf 
Sum Epicurean brettanna hafa safagróf á annari hliðinni, sem auðveldar notkun þegar safaríkur matur er skorinn.
  Umhverfisvæn
Epicurean brettin eru unnin úr pappír sem unnin er úr viðurkenndum sjálfbærum skógum.  Þau eru einnig endurvinnanleg.
  Heilbrigðisvottuð
Epicurean brettin eru vottuð af bandaríska heilbrigðiseftirlitinu.  Þau eru auðveld í þrifum og verða ekki gróðrastía fyrir sýkla.