|
|
Kokka hefur frá upphafi selt Kærleikskúluna fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra í desember mánuði ár hvert.
Kærleikskúlan 2011 heitir Skapaðu þinn heim og er gerð af Yoko Ono.
Við seljum einnig jólaóróann sem í ár tekur á sig mynd Leppalúða. Það Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir sem hannar óróann.
Tilgangurinn með sölu Kærleikskúlunnar og jólaóróans er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna með því að efla starfsemi Reykjadals og rennur allt söluverð kúlunnar til Styrktarfélagsins.
Skapaðu þinn heim og Leppalúði verða í sölu frá 5. - 19. desember 2011.
|