Pappelina plastmotturnar hafa farið sigurför um heiminn og eru loks fáanlegar hér á Íslandi. Í Kokku bjóðum við upp á úrval af gólfmottunumauk þess sem hægt er að sérpanta draumamynstrið, stærðina og litinn ef óskamottan þín er ekki til á lager. Við höfum líka tekið inn brot af öðrum vörum Pappelinu og búumst við að úrvalið aukist með tímanum.
Pappelina stendur fyrir einfalda og funksjónal hönnun í hæsta gæðaflokki. Allar vörurnar þeirra eru framleiddar í Svíþjóð þar sem fyrirtækið er staðsett vegna þess að stjórnendur fyrirtækisins hafa hagræði og þjóðhagslega hagkvæmni að leiðarljósi.
Þú getur skoðað allt vöruúrval Pappelinu og lesið meira um fyrirtækið á vefnum þeirra.
Stofnandi og aðalhönnuður Pappelinu er Lina Rickardsson.