Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.


Riedel ættin hefur unnið með gler og krystal í 11 kynslóðir eða meira en 300 ár. Fyrsta glerverksmiðja Riedel var opnuð í Bohemíu 1756 og hefur Riedel ættin komið með margar nýjungar inn í þessa framleiðslu.

Mest áhrif hafa þeir þó haft á framleiðslu vínglasa og hafa nú framleitt hágæða vínglös í meira en 40 ár. Claus Riedel var fyrstur til að átta sig á því fyrir um 40 árum að lögun vínglasa gat aukið á ánægjuna við víndrykkju. Sonur hans Georg Riedel þróaði þessa hugsun síðan lengra og uppgötvaði að mismunandi lögun hentaði vínum úr mismunandi vínþrúgum.

Riedel er með höfuðstöðvar í Austurríki og framleiðir nú glös í mörgum mismunandi línum og á mismunandi verði. Kokka hefur selt glös úr 3 af þeim línum sem fyrirtækið framleiðir.

Á heimasíðu Riedel er hægt að skoða nánari upplýsingar um fyrirtækið og framleiðslu þess.