Leita
0 stk. í Samtals 0 kr.

Rösle hefur framleitt hágæða eldhúsáhöld úr ryðfríu stáli í nær hundrað ár.  Fyrirtækið leggur mikla áherslu á gæði og stílhreina hönnun en einnig að hver hlutur þjóni tilgangi sínum fullkomlega.  Vegna stöðugrar leitar Rösle að nýjum og betri lausnum kemur fyrirtækið fram með fjölda af framsæknum vörum árlega.
Rösle hefur fengið fjölda verðlauna fyrir hönnun og vöruþróun og það sem enn meira er um vert er að Rösle býður 5 ára ábyrgð á öllum áhöldunum sínum og hikar ekki við það.  Enda eru Rösle áhöldin einfaldlega óþreytandi og þetta vita vinir okkar hjá Rösle eftir nær 100 ára framleiðslu. 
     
Á heimasíðu Rösle má finna ýmsar upplýsingar en einnig er hægt að horfa á kynningarmyndbönd frá fyrirtækinu á youtube. Það er auðvelt að gleyma sér við að horfa á frábæru tólin frá Rösle vinna svona léttilega í eldhúsinu...