Fyrir nær 60 árum framleiddi Rowlett sína fyrstu brauðrist. Í dag framleiðir fyrirtækið hágæða tæki fyrir eldhús, ekki síst atvinnueldhús.
Orðspor Rowlett byggir á hágæða handverki, endingu og góðri hönnun. Hvert tæki er sett saman í höndum og prófað vandlega til að tryggja ánægju viðskiptavinarins. Í leit sinni að fullkomnun eru vörur Rowlett í stöðugri þróun og nýjasta tækni nýtt í framleiðsluna.
Kokka flytur inn og selur brauðristar úr tveimur línum frá Rowlett, Esprit sem eru nútímalegar heimilisbrauðristar og Premier sem eru upprunalegu brauðristarnar frá Rowlett.
Ýmsar upplýsingar má finna á heimasíðu Rowlett.
|
|