Windmühlenmesser var stofnað árið 1872 af Robert Herder. Fyrirtækið er enn í eigu sömu ættarinnar sem viðheldur sömu hefðum og áður hvað varðar gæði og vinnubröðg.
Allir hnífar eru handunnir frá grunni og eru sérstaklega beittir vegna aðferðar sem notuð er við skerpinguna. Windmühlenmesser framleiðir ryðfría hnífa en einnig hnífa úr karbon-stáli sem eru ekki ryðfríir en eru beittari og halda biti lengur.
Windmühlenmesser framleiðir einnig hnífastanda úr kirsuberjaviði og skurðarbretti sem eru einstök að því leiti að þau eru úr einu viðarstykki, þ.e. ekki límd.
Kokka flytur inn og selur flestar af þeim vörum sem Windmühlenmesser framleiðir.
Ýmsar upplýsingar má finna á heimasíðu Windmühlenmesser.
|
|