Þessi kjarnhitamælir sér til þess að steikin verði fullkomin í hvert einasta sinn. Þegar kjötið hefur náð þeim hita sem óskað er pípir mælirinn og lætur vita. Í mælinum eru einnig fyrirframskilgreind hitaviðmið fyrir mismunandi eldunarstig mismunandi kjöttegunda og upp- og niðurteljari allt að 20 klst. Hitaneminn er í 1 m langri hitaþolinni snúru og mælinn má láta standa eða festa upp á snaga eða með segli. 1 stk AAA batterý fylgir með.