|
Hönnuður:
Björn Dahlström
Tools pottarnir og pönnurnar eru ekki eingöngu fallegir heldur virka einnig mjög vel. Dahlström hannaði línuna í samráði við færustu kokka og sérfræðinga í efnismeðhöndlun enda leynir árangurinn sér ekki í formfögrum pottunum sem henta fyrir flestar gerðir eldamennsku.
Pottarnir og pönnurnar eru ýmist úr pottjárni eða áli.
Pottarnir sem eru úr áli eru húðaðir að utan og innan með ryðfríu stáli. Þetta tryggir mjög góða og jafna hitaleiðni og langa endingu.
Smíðajárnspönnurnar eru þykkar sem tryggir jafnan og stöðugan hita.
|